Ef
ég skyldi einhverntíma komast í vandræði
þá vildi ég vera meðal ítala.
- Halldór Laxness.
Lestu meira um hvernig íslensk skáld hafa
ort og skrifað
um Ítali og Ítalíu.
UMSAGNIR
Við
erum búin að vísa mörgum í
hús til ykkar því af þeim vefjum
ítölskum sem við skoðum þá
held ég að ykkar geri betur en flestir að
vísa til vegar á Ítalíu og
ekki síst í Róm.
...hagnýtur
og
hentugur vefur sem fær nánast fullt hús
stiga út á upplýsingagildið
og skemmtilegheitin ...
Við
prentuðum út margar síður af þessum
snilldarvef og notuðum sem biblíu á
10 daga ferðalagi okkar um Róm.
Davíð Oddsson forsætisráðherra er í Róm þessa dagana. Samkvæmt fréttum hefur hann átt fund með Silvio Berlusconi forsætisráðherra Ítalíu og flutt erindi á hádegisverðarfundi Íslensk - ítalska verslunarráðsins. Átti við það tækifæri að undirrita tvísköttunarsamning milli Íslands og Ítalíu. Auk þessa segir í fréttum að Davíð hafi þegið heimboð Berlusconis á setur hans á Sardiníu og dvalið þar í einkaheimsókn.
Það er öllum Ítalíuvinum fagnaðarefni að samskipti Íslands og Ítalíu séu aukin og bætt, hvort sem er í viðskiptum eða menningarmálum. Hitt vita þeir og að forsætis- og utanríkisráðherrann Berlusconi er umdeildur maður í sínu heimalandi og reyndar í álfunni allri. Því hlýtur það að orka tvímælis að forsætisráðherra okkar skuli sjá ástæðu til að færa samskipti sín við þennan tvöfalda kollega sinn frá hinu opinbera stigi yfir á hið persónulega. Hvað er það þá sem Davíð Oddsson vill segja okkur og öðrum Evrópubúum með einkavinskap sínum við fjölmiðlafurstann? Er það að Ísland leggi blessun sína yfir fjármála- og valdasamþjöppun ríkisvaldhafa og hugsanleg afbrot í því augnamiði að græða og ráða, eða er Davíð að sækja sér einkatíma í makkíavellískum fræðum alla Berlusconi? Kosningar enda í nánd og þörf á að verja sig fyrir hvítagaldri sólrúna.
Berlusconi er afar umdeildur maður og því vægast sagt vafasamt fyrir forsætisráðherra stolts lýðræðisríkis að eiga samskipti við hann á persónulegum nótum án þess að slíkt kalli á gagnrýni og spurningar um túlkun. Maður bara þyggur ekki heimboð slíks manns án þess að marghugsa afleiðingar slíks. Og það hefur Davíð okkar eflaust gert og haft eftirfarandi í huga: Segðu mér hverjir vinir þínir eru og ég skal segja þér hver þú ert. Sá á kvölina sem á dvölina. (kp, sept. 2002).
Eldaðu
ítalskt !!!
Oft er það einfaldleikinn sem blívur
best og segja má að eitt af því
sem einkennir ítalska matargerð sé sparleg
notkun hráefnis og krydda.
Söguás:
1929
Mússolíní og Píus páfi
XI. semja um réttarstöðu Páfagarðs
sem sjálfstætt ríki innan ítalska
ríkisins með samningi sem kenndur er við
Lateran.
Hátíðir
Kjötkveðju-
hátíð er haldin í Róm
svo til allan febrúarmánuð og nær
hámarki á Martedí Grasso,
sprengidag þeirra Ítala. Karnivalið virðist
aðallega vera hátíð smáfólksins;
telpurnar klæða sig upp í prinsessukjóla
og strákarnir í ofurhetjubúninga.
Hver
er maðurinn?
Silvio Berlusconi fv. forsætis-
ráðherra Ítalíu hóf ferilinn
sem dægurlaga-söngvari á ferjum, en
tók síðan að stunda viðskipti
og sá sér þá hag í að
stofna til vinfengis við stjórnmálamenn.
Feneyjar
Feneyjar eru reistar á mörgum hólmum
og helsti ferðamáti íbúa innan
borgarinnar hefur frá upphafi verið siglingar.
Upphaf
klaustur-
lífs
Það féll í hlut Benedikts frá
Núrsíu að stofna fyrstu munka-
regluna og ber hún nafn hans. Benedikt kom klaustri
á laggirnar á Monte Cassino á Suður-Ítalíu.
Kaþólsk
trú og lútersk
Ef kaþólskur maður bergir brauðið
við altarisgöngu verður brauðið að
holdi Krists í munni honum vegna þess að
presturinn framkvæmir athöfnina fyrir hönd
kirkjunnar.
Leonardo
Leonardo da Vinci er talinn einn mesti listamaður
sögunnar. Hann fæddist í smábænum
Vinci á Ítalíu um miðja 15. öldina
og hefur æ síðan verið við þann
bæ kenndur.
ÁBÓTINN
SAGÐI ...
Rómaborg er
yfir öllum borgum, og hjá henni eru allar borgir
að virða sem þorp, því að jörð
og steinar og stræti öll eru roðin
í blóði heilagra manna.