Ef
ég skyldi einhverntíma komast í vandræði
þá vildi ég vera meðal ítala.
- Halldór Laxness.
Lestu meira um hvernig íslensk skáld hafa
ort og skrifað
um Ítali og Ítalíu.
UMSAGNIR
Við
erum búin að vísa mörgum í
hús til ykkar því af þeim vefjum
ítölskum sem við skoðum þá
held ég að ykkar geri betur en flestir að
vísa til vegar á Ítalíu og
ekki síst í Róm.
...hagnýtur
og
hentugur vefur sem fær nánast fullt hús
stiga út á upplýsingagildið
og skemmtilegheitin ...
Við
prentuðum út margar síður af þessum
snilldarvef og notuðum sem biblíu á
10 daga ferðalagi okkar um Róm.
Þær takast þéttingsfast í hendur, sú bláa og sú berlúskóníska, á heimili Silvíós Berlusconi á hinni fögru eyju Sardiníu í Miðjarðarhafinu, og forsætisráðherrann ítalski smellir kossi á sína hvora kinnina síns íslenska starfsbróðurs og systurflokksmanns, eins og ítalskir gera við vini sína. Þetta er í september anno 2002.
Haustar í Reykjavík, fínt að skreppa suður til Rómar, vinna einn dag og skreppa svo í einkaheimsókn til Silvíós í sólina á Sardiníu. Hei, kosningar í nánd og hann Silvíó lumar sko örugglega á nokkrum trikkum til að klekkja á Sólrúnu.
Fín villa hjá þér Silví ... - Ó, og sundlaug líka! Við eigum líka eina svona í Vesturbænum, Silvíó, en það er alltaf eitthvert fólk að synda í henni. Hvernig gengur ykkur í boltanum annars? Veistu, þínir strákar og mínir eru báðir í röndóttu. Góð hugmynd að láta flokkinn þinn heita Áfram Ítalía, hljómar eitthvað svo kunnuglega. Ætli við getum notað þetta? Veistu um einhverja sem eru góðir í að gata fjöll? Heyrðu, fyrst ætla ég að segja þér söguna um beljuna Búkollu og skessuna með stóra tappatogarann. - Jú, takk, ég þigg örlítið meira í glasið. Makalaust gott veður hjá þér hérna, Silvíó.
ÞJÓÐREMBULEGT SLAGORÐ? Athyglisvert er, í ljósi vinskapar Davíðs Oddssonar og Silvios Berlusconi, að kjörorð Sjálfstæðisflokksins fyrir kosningarnar 2003 eru Áfram Ísland.
Davíð Oddson er forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins sem nú rekur kosningabaráttu undir kjörorðunum Áfram Ísland. Silvio Berlusconi er forsætisráðherra Ítalíu, stofnandi og leiðtogi flokksins Forza Italia, Áfram Ítalía. Hann er auðugasti maður Ítalíu og m.a. eigandi mikillar fjölmiðlasamsteypu og AC Milan knattspyrnufélagsins. Á heimasíðu flokks Berlusconis, www.forza-italia.it, er Sjálfstæðisflokkurinn talinn til systurflokka flokksins í Evrópu.
Davíð og Berlusconi kynntust ágætlega þegar sá síðarnefndi gegndi hvort tveggja starfi forsætis- og utanríkisráðherra og sótti Ísland heim á Natófund árið 2001. Er Davíð átti opinbert erindi til Rómar haustið 2002 bauð Berlusconi honum að dvelja með sér í einkaheimsókn á setri sínu á Sardiníu.
Silvió Berlusconi og samstarfsmenn hans margir hafa verið sakaðir um og dæmdir fyrir margskonar spillingu í stjórnsýslu og viðskiptum. Forsætisráðherrann er nú þessa dagana (sumarið 2003) fyrir rétti í Mílanó og pólitísk framtíð hans á valdi dómara sem hann segir vera vinstrisinnaða ofsóknarmenn sína. Dómur á að falla fyrir haustið. Samstarfsflokkar Berlusconis eru þjóðernissinnaður hægriflokkur og flokkur byggður á fyrrum Fasistaflokki Ítalíu. (kp, maí 2003).
Eldaðu
ítalskt !!!
Oft er það einfaldleikinn sem blívur
best og segja má að eitt af því
sem einkennir ítalska matargerð sé sparleg
notkun hráefnis og krydda.
Söguás:
1929
Mússolíní og Píus páfi
XI. semja um réttarstöðu Páfagarðs
sem sjálfstætt ríki innan ítalska
ríkisins með samningi sem kenndur er við
Lateran.
Hátíðir
Kjötkveðju-
hátíð er haldin í Róm
svo til allan febrúarmánuð og nær
hámarki á Martedí Grasso,
sprengidag þeirra Ítala. Karnivalið virðist
aðallega vera hátíð smáfólksins;
telpurnar klæða sig upp í prinsessukjóla
og strákarnir í ofurhetjubúninga.
Hver
er maðurinn?
Silvio Berlusconi fv. forsætis-
ráðherra Ítalíu hóf ferilinn
sem dægurlaga-söngvari á ferjum, en
tók síðan að stunda viðskipti
og sá sér þá hag í að
stofna til vinfengis við stjórnmálamenn.
Feneyjar
Feneyjar eru reistar á mörgum hólmum
og helsti ferðamáti íbúa innan
borgarinnar hefur frá upphafi verið siglingar.
Upphaf
klaustur-
lífs
Það féll í hlut Benedikts frá
Núrsíu að stofna fyrstu munka-
regluna og ber hún nafn hans. Benedikt kom klaustri
á laggirnar á Monte Cassino á Suður-Ítalíu.
Kaþólsk
trú og lútersk
Ef kaþólskur maður bergir brauðið
við altarisgöngu verður brauðið að
holdi Krists í munni honum vegna þess að
presturinn framkvæmir athöfnina fyrir hönd
kirkjunnar.
Leonardo
Leonardo da Vinci er talinn einn mesti listamaður
sögunnar. Hann fæddist í smábænum
Vinci á Ítalíu um miðja 15. öldina
og hefur æ síðan verið við þann
bæ kenndur.
ÁBÓTINN
SAGÐI ...
Rómaborg er
yfir öllum borgum, og hjá henni eru allar borgir
að virða sem þorp, því að jörð
og steinar og stræti öll eru roðin
í blóði heilagra manna.