E F N I
RÓM > HANDBÓK
RÓM > HVERFI
ÍTALÍA
SAGA
KIRKJA
LISTIR
MATUR
TENGLAR
UM VEFINN
EFNISYFIRLIT
LEITA í VEFNUM
Sláðu inn það efnisorð sem þú hefur áhuga á að fræðast um í Rómarvefnum.
NÝTT í VEFNUM
08.05.09 Mussolini og launsonurinn. Lesa

17.05.07 Nokkrir góðir punktar um eitt og annað sem hægt er að gera í Róm. Lesa

15.05.07 10 staðir í Róm sem koma þér í beint samband við fornöldina. Lesa

04.11.06 Vínframleiðsla á Sikiley er mikil og hefur stórbatnað síðustu árin. Lesa

02.09.06 Bottega dei vini er vínsetur vert að heimsækja í Verónu. Lesa
FERÐAVEFIR
ÍTALÍA: Hanna Friðriks
PARÍS: Parísardaman
K.HÖFN: Islands center
ÍS-ÍT: islandaoggi.com

- Þinn vef hér? Hafðu samband.
SKÁLDIÐ SAGÐI ...
„Ef ég skyldi einhverntíma komast í vandræði þá vildi ég vera meðal ítala.“

- Halldór Laxness.

Lestu meira um hvernig íslensk skáld hafa ort og skrifað um Ítali og Ítalíu.
UMSAGNIR
Lestu umsagnir um Rómarvefinn.
Við erum búin að vísa mörgum í hús til ykkar því af þeim vefjum ítölskum sem við skoðum þá held ég að ykkar geri betur en flestir að vísa til vegar á Ítalíu og ekki síst í Róm.

...hagnýtur og
hentugur vefur sem fær nánast fullt hús stiga út á upplýsingagildið og skemmtilegheitin ...

Við prentuðum út margar síður af þessum snilldarvef og notuðum sem biblíu á 10 daga ferðalagi okkar um Róm.

Meira
 
 
Um Evruna
  Í byrjun var evran aðeins til sem óhlutbundinn gjaldmiðill, en varð þó strax áberandi í ríkisfjármálum og stór fyrirtæki færðu bókhald hvort tveggja í evrum og í eigin landsgjaldmiðli. Hinar áþreifanlegu evrur létu loks sjá sig þann 1. janúar árið 2002.

Höfuðmarkmið Efnhags- og myntbandalag Evrópu (EMU) er að styrkja stöðugleika og aðstæður fyrir varanlegan efnhagslegan vöxt í Evrópu. EMU felur m.a. í sér evruna, sameiginlega mynt aðildarríkjanna, en margir líta svo á að með tilkomu hennar verði fullkomlega sameiginlegur innri markaður að veruleika.

Með evrunni sparast kostnaður vegna gjaldmiðlaskipta (sem er áætlaður allt að 0.4% af landsframleiðslu ríkjanna), viðskipti verða einfaldari og þægilegri og neytendur njóta góðs af auðveldari verðsamanburði. Evran verður einn stærsti gjaldmiðill heims en um 300 milljónir manna búa í þeim ríkjum sem taka að fullu þátt í samstarfinu frá upphafi. Hlutur ríkja myntbandalagsins í heimsviðskiptum er ámóta og hlutur Bandaríkjanna.

Þátttakendur í EMU
Aðeins aðildarríki ESB geta átt aðild að EMU. Ellefu aðildarríki ESB, Austurríki, Belgía, Finnland, Frakkland, Írland, Ítalía, Lúxemborg, Holland, Portúgal, Spánn og Þýskaland, eru stofnaðilar að EMU. Grikkland bættist síðan í hópinn 1. janúar 2001.

Skilyrðin fyrir aðild að EMU voru sett fram í Maastricht-sáttmálanum en þeim er ætlað að tryggja að ekki væri of mikill munur á efnahagslífi þátttökuríkjanna. Þau taka til verðbólgu, skulda hins opinbera, langtímavaxta, gengisstöðugleika og jafnvægis í ríkisrekstri. EMU felur ekki einungis í sér upptöku sameiginlegrar myntar heldur einnig samræmingar peningamála- og gengisstefnu aðildarríkjanna og samstarfs um efnhagsstefnu. Samstarfið um efnhagsstefnu tekur sérstaklega til aðhalds í ríkisfjármálum og stöðugs verðlags. Aðildarríkin hafa gert með sér „Samkomulag um stöðugleika og vöxt“ (Pact for Stability and Growth) sem undirstrikar mikilvægi þess að draga úr skuldum hins opinbera og hallarekstri ríkissjóðs og halda verðbólgu í skefjum. Danir fengu sérstaka undanþágu frá þáttöku í EMU og Svíar og Bretar hyggjast ekki gerast aðilar fyrst í stað.

Evran tók yfir í ársbyrjun 2002
Í upphafi var evran aðeins til „óhlutbundið“ og fólk gat t.d. fengið ávísanahefti og átt bankainnistæður í evrum. Evran var strax frá upphafi áberandi í ríkisfjármálum og mörg stór fyrirtæki færðu þá bókhald í evrum og eigin gjaldmiðli eða eingöngu í evrum. Þann 1. janúar árið 2002 komu fram á sjónarsviðið peningaseðlar og mynt í evrum og gömlu gjaldmiðlarnir hurfu svo úr umferð þann 28. febrúar.

Seðlabanki Evrópu
Seðlabanki Evrópu tók til starfa 1. júlí 1998 í Frankfurt. Seðlabankinn nýtur algers sjálfstæðis og hann ákveður vexti og annað sem fellur undir peningamálastefnu en efnhagsstjórn verður að öðru leyti í höndum aðildarríkjanna með sama hætti og fyrr. Wim Duisenberg er bankastjóri Seðlabanka Evrópu og honum til fullþingis er stjórn sem í sitja m.a. seðlabankastjórar aðildarríkjanna ellefu. Undir aðalstjórn / yfirstjórn bankans er sex manna framkvæmdastjórn sem er skipuð til átta ára í senn. Aðalmarkmið bankans er að viðhalda stöðugu verðlagi á myntbandalagssvæðinu. Skilgreiningin á stöðugu verðlagi er, skv. yfirstjórn bankans, minna en 2% verðbólga á einu ári eins og hún mælist í sameiginlegri mælingu á verði neysluvara á myntbandalagssvæðinu, - í svokallaðri samræmdri neysluverðvísitölu (e. Harmonised Index of Consumer Prices). Gengi evrunnar getur sveiflast nokkuð gagnvart öðrum gjaldmiðlum án þess að það hafi veruleg áhrif á verðlag í ESB vegna mikilla innri viðskipta á svæðinu. Gengi evrunnar gagnvart öðrum gjaldmiðlum er ekki nauðsynlega merki um hversu "vel eða illa heppnaður" gjaldmiðill hún er heldur endurspeglar að vissu marki sveiflur í efnhag aðildarríkjanna gagnvar öðrum hagkerfum.


Grein þessi er fengin af Evrópuvefnum á Íslandi, www.esb.is/policies/emu.htm,
en nánari upplýsingar um evruna má finna
á Evruvef framkvæmdastjórnarinnar, www.europa.eu.int/euro/html/entry.html
.

 
 
Smelltu!
HVAÐ VILTU ?
ÚR VEFNUM
Eldaðu ítalskt !!!
Oft er það einfaldleikinn sem blívur best og segja má að eitt af því sem einkennir ítalska matargerð sé sparleg notkun hráefnis og krydda.
Söguás: 1929
Mússolíní og Píus páfi XI. semja um réttarstöðu Páfagarðs sem sjálfstætt ríki innan ítalska ríkisins með samningi sem kenndur er við Lateran.
Hátíðir
Kjötkveðju-
hátíð er haldin í Róm svo til allan febrúarmánuð og nær hámarki á Martedí Grasso, sprengidag þeirra Ítala. Karnivalið virðist aðallega vera hátíð smáfólksins; telpurnar klæða sig upp í prinsessukjóla og strákarnir í ofurhetjubúninga.
Hver er maðurinn?
Silvio Berlusconi fv. forsætis-
ráðherra Ítalíu hóf ferilinn sem dægurlaga-söngvari á ferjum, en tók síðan að stunda viðskipti og sá sér þá hag í að stofna til vinfengis við stjórnmálamenn.
Feneyjar
Feneyjar eru reistar á mörgum hólmum og helsti ferðamáti íbúa innan borgarinnar hefur frá upphafi verið siglingar.
Upphaf klaustur-
lífs

Það féll í hlut Benedikts frá Núrsíu að stofna fyrstu munka-
regluna og ber hún nafn hans. Benedikt kom klaustri á laggirnar á Monte Cassino á Suður-Ítalíu.
Kaþólsk trú og lútersk
Ef kaþólskur maður bergir brauðið við altarisgöngu verður brauðið að holdi Krists í munni honum vegna þess að presturinn framkvæmir athöfnina fyrir hönd kirkjunnar.
Leonardo
Leonardo da Vinci er talinn einn mesti listamaður sögunnar. Hann fæddist í smábænum Vinci á Ítalíu um miðja 15. öldina og hefur æ síðan verið við þann bæ kenndur.
ÁBÓTINN SAGÐI ...
„Rómaborg er yfir öllum borgum, og hjá henni eru allar borgir að virða sem þorp, því að jörð og steinar og stræti öll eru roðin í blóði heilagra manna“.

- Nikulás ábóti
á Þverá, 12. öld.

ALLIR VEGIR TIL ...
Rómarvefurinn er helgaður sögu og menningu Ítalíu. Útgefandi er Mínerva - miðlun & útgáfa. Ritstjóri og aðalhöfundur efnis er Kristinn Pétursson. Allur réttur áskilinn © Rómarvefurinn anni MMI - MMX. Síðast uppfært 08.06.2010

eXTReMe Tracker
Forsíða / Handbók / Hverfi / Ítalía © MMX Saga / Kirkja / Listir / Matur / Tenglar
Um vefinn / Efnisyfirlit / Hafa samband